
Nordic 78
Glæsilegt 78m2 sumarhús með verönd. Veröndin er 48,9m2 og pallur 4m2 við innganginn.
Bjálkinn í útveggjum er 205x275 en í burðar innveggjum 135x275
Verð á efnispakka í bjálka 17.500.000,-kr
Efnispakkinn inniheldur alla útveggi, útihurðar og glugga, alla innveggi, og innihurðar, þaksperrur, þakklæðningu og panil í loft. Einnig allt efni í verönd og pall við inngang.
Allt efni kemur tilsagað og heflað og því er húsið tilbúið til innréttinga þegar það hefur verið reist.
Verð á efnispakka með fylgihlutum 18.420.000,-kr
Fylgihlutir eru: Þakpappi, þakjárn (ólitað alúzink), þaksaumur, einangrun í loft (200mm steinull) og rakasperruplast.